Sótthreinsun
BG Mygluþrif hefur yfir mikilli reynslu að búa í sótthreinsunum á húsnæði þar sem vatnstjón hefur komið upp. Algengast er að vatn sé hreinsað upp, viðgerð gerð og sótthreinsun gerð í kjölfarið. Misjafnt er hversu mikið er sótthreinsað í kjölfar vatnstjóns en það fer allt eftir umfangi vatnsskaðans.
Meðal verkefna í hreinsun eftir vatnstjón :
- Djúphreinsun á gólfum
- Hreinsun á veggjum og loftum
- Þrif og sótthreinsun á innanstokksmunum
- Þurrísblástur á trébitum eftir leka
- Djúphreinsun og sótthreinsun á teppum, mottum og húsgögnum
- Alsótthreinsun á húsnæði